Veit ekki alveg hvernig ég get orðað þetta, en ég og Anna erum nýráðnar þernur hjá frægasta fasteignasala Danmerkur. Starfið gengur út á að fara í labbitúra með hundinn Hannibal og gera hreint í 500 m2 húsinu hans. Þernustarfið hefur heldur betur "benefits":
- ég og Anna búum frítt á fjögurra herbergja efrihæð í húsinu hans
- hann borgar matinn
- við fáum bíl sem við megum nota eins mikið og við viljum
- við fáum bensínkort
- við föllum undir tryggingarnar hans
- hann ferðast mikið og þegar hann er ekki heima megum við horfa á hjúmöngus sjónvarpið hans og kósýast í stóru stofunni við arineldinn
- það er internet
- hann býr við sjóinn og er með einka baðbrú þar sem við getum sólað okkur á sumrin
...ég er pottþétt að gleyma einhverju.
Þetta er svona tú gud tú bí trú! Maðurinn á bara svo mikla peninga að hann munar ekkert um að halda tveimur stúdínum uppi...bara ef þær eru góðar við hundinn hans.
Ég var nýbúin að sækja um námslán þegar ég fékk þetta, þannig að nú er ég með 80.000
kr. á mánuði í kaffihúsapeninga...hehe.
Hef verið undir óheillastjörnu frá því að ég kom til Dk en gæfan er heldur betur búin að snúast mér í hag. ÉG ELSKA LÍFIÐ!
Er líka komin á nýtt hjól sem ég keypti á lögregluuppboði. Það heitir Fagri blakkur og stendur svo sannarlega undir nafni. Ansi gott hjól sem ég fékk á góðu verði.
Helgin var svo unaðsleg. Sólveig Ása var hjá mér, hún klikkar ekki stelpan! Er reyndar allt annað en úthvíld eftir helgina, við tókum auðvitað á því eins og okkur einum er lagið.
Vona að ykkar helgi hafi verið dúndur.
rock on
Hulda
Monday, February 06, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
10 comments:
ohh vá ég segi bara vá og brosi og brosi
fokkings mikið til lukku og allt...þetta er MEGA MEGA hresst og frábært og síðan ligguru bara á Bellevujjj strand í allt sumar og verður niggahh!
Jó, ekki satt?s
Djöfuls lúxus er þetta.
Vantar hann ekki ástkonu, tek það starf að mér með glöðu geði.
Þið eruð svoldið heppnar systur....... þetta er næstum jafn gott og Hótel Mamma ;) Til lukku með þetta elskurnar....... hlakka til að sjá myndir af þessu :P
fkn heppin !
Vá, í hvaða heitasta ævintýri dastu?? Oh, bara betra en H.C. And.;) Maður kannski kíkir á þetta í mars hah! Njóttu
Nei nei nei...gæfan snérist ykkur svo sannarlega í hag enda veit ég ekki um betri stúlkur fyrir hana til að snúa sér að. Njótið ykkar bara sem best!
Ég á í alvörunni ekki til orð. Ég gapti allan tímann sem ég las þetta, þvílíkt og annað eins.
Innilega til hamingju stúlka góð.
Karlinn heitir víst Fog en ekki Fogh...húrra fyrir því!
Þetta er unfuckingbelievable!!!Pjúra snilld....það er ýkt það er kúl það er algjört æði það er ýkt er við röppum landafræði! Haha...elskurnar til lukku með þetta,ég fylltist hamingju fyrir þína hönd ástin mín! Þetta er ævintýri líkast! Væri snilld að geta heimsótt einhvern tímann...geri það allavega þegar ég vinn í lottóinu!
Ást og söknuður
Hugsið ykkur húsmæðraorlofið stelpur mínar ...prívat "badebro" og svona. Getum legið á júllunum og allt...
Post a Comment