Wednesday, April 04, 2007

Stund milli stríða - bloggpása milli "positivisme" og "kritisk rationalisme"

”Hulda ætlaru ekki að fara að blogga” heyrðist í Önnu í morgun. Henni fannst liðið of langt síðan ég bloggaði síðast, auk þess fór yfirskriftin ”Andi með rass í bala” afskaplega í taugarnar á henni. Gæti ekki verið meira sammála henni...

Ég hef tekið þá ákvörðun að gefa út smásögusafnið ”Hjólasögur frá Köben”.
Veit ekki hvort þið munið eftir öllum hjólasögunum sem birst hafa á þessu bloggi, en þær eru orðnar all margar – og ég er enn að safna í sarpinn.
Hjólið mitt sat fast í 2 gír um daginn. 2. gír er mjög léttur gír og Danmörk er mjög flatt land. Þegar ég var að taka af stað á ljósum hentaði gírinn rosa vel, en annars voru hjólatúrarnir bara eins og villtir spinning tímar. Fólki virtist samt líka vel við mig svona – sá allavega nokkra glotta útí annað þegar ég hjólaði fram hjá. Skilekkiakkuru!

Þegar ég var orðin leið á spinningástandinu kíkti ég við hjá hjólasmiðnum í götunni. Hann tjáði mér að hjólið mitt ætti heima á haugunum (ha í alvöru á ryðhaugurinn minn heima á ruslahaugunum!) og að það myndi ekki borga sig að gera við það. Þegar ég hjólaði frá honum gerðist svo undur og kraftaverk. Hjólið hafði greinilega tekið þessu sem móðgun og ákvað að festast í þyngsta gírnum í staðinn. Já herrar mínir og frúr það er sko bara annað hvort eða hjá miss Roxy. Spinningástandið ríður sem sagt ennþá rækjum...að taka af stað á ljósum er vandamálið núna.

Keðjan á miss Roxy finnst hún heldur ekki eiga alveg heima þar sem hún á að vera. Olíuputtar eru þess vegna nær orðnir hluti af mér. Hvað segiði er nýtt hjól málið?

Úr einu í annað...
Man ekki hvort ég var búin að segja ykkur frá thai-stelpu-afmælis-matarboðinu sem ég hélt um þar síðustu helgi. Er búin að vera á thai matarnámskeiði og ákvað að sína snilli mína og hafa margréttað thai matarboð. Ég bauð 12 stelpum sem áttu að koma klukkan 19 á laugardegi. Það var mikið að gera í skólanum vikuna áður, þannig að frítíminn fór í að skipuleggja matseldina og versla galangarót, svart chilly pasta, sítrónugras og þar frameftir götunum. Ísskápurinn hjá okkur hefur aldrei verið svona fullur.


Á föstudeginum setti ég kjúkling og nautakjöt í marineringu og undirbjó það sem hægt var. Laugardagurinn fór að einhverju leyti í tiltekt og annað stúss og um 16 leytið ákvaðum ég og Anna að skella okkur út í búð og kaupa það síðasta sem vantaði...aðallega vín. Anna skellir hurðinni á eftir sér og svo kemur einhvað skrítið bros á hana – ég spyr hana af hverju hún sé að glotta svona og þá spyr hún mig tilbaka ”ertu með húslykla?”....aaaaaaaaaaaaaaaaa ég held að ég hafi sjaldan á ævi minni orðið svona stressuð. Nóbb engir lyklar...ENGIR LYKLAR og stelpurnar væntanlegar. Ég hefði verið til í að læsa mig úti alla aðra daga en þennan – þetta var of týpískt ég.
Þetta reddaðist samt allt saman – en í staðinn urðum við systur 7000 kr. fátækari. Held að maður gæti verið með ágætis tímakaup sem lásasmiður!
Vel heppnað matarboð varð þetta þó...





Jæja bakk tú biss – læra, læra, læra.

Hulda

8 comments:

Anonymous said...

Þetta hefur greinilega bragðast vel því skálin er tóm. Hlakka til að fá kennslu í tai-matargerð.

Mundu að fara inn á storskrald þ.s. hægt er að finna m.a. notuð hjól.

Knús
ma

Kristjana Páls said...

hahahah þetta er nú baaara fyndið, sé þig alveg fyrir mér í spinningástandi nr. 1 í keppni við hraðamælinní götunni hjá vinnunni þinni, alveg á blússandi ferð og á enn meiri ferð með fæturna!!hahahah

ohh já, mig langar í thai-boð..

Hulda hefur talað... said...

Skálin sem er tóm hafdi innihaldid eftirréttinn - ávaxtasalat med myntu. Mæli líka med tví;)
Ég elda thai mat handa ykkur vid tækifæri...

Anonymous said...

Oooo langar í tai mat, það er nú meira hvað þú ert myndarleg, mátt alveg emaila fljótlegar uppskriftir, er komin með ógeð af öllu núna nema soðnum fiski sem er ekki gott 5x í viku! Já og þó ég sé blönk er ég alveg til í að styrkja þig um 500 IKR til kaupa á nýju/notuðu hjóli, þetta er greinilega orðið problemo;)

Sæja said...

Hjólasögur Huldu eru alltaf skemmtilegar. Farðu svo að koma til Íslands að elda thai mat fyrir mig, nema þú bjóðir mér bara í mat í haust þegar ég kem. Það er bara svo langt þangað til damn.

Anna Elvíra Herrera said...

hahaha þú og þínar hjólasögur eru alve gkostulegar :)

Anonymous said...

Æ .. sorry ég gleymi svo oft ad fara á blogg rúnta og helst ad kvitta. En núna rakst ég á thad fyrir tilviljun thar sem ég var ad googla uppskriftir ad speltbollum.Thá var bara linkur inná bloggsíduna thína thar sem thú varst augljóslega ad baka speltbollur um daginn;-) Sendi hérna eitt stykki knús á thig! Lubbs

Kristjana Páls said...

er nýtt blogg á stefnuskránni?